Fróðleikur um erfðamál

Þriðjudaginn 28. febrúar  flytur Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður okkur fróðleik um erfðamál.

Hún spyr: Vilt þú vita hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Hvaða reglur gilda og hverju er hægt að breyta?

Farið verður yfir meginreglur erfða- og hjúskaparlaga og leitast verður við að svara helstu spurningum sem vakna varðandi erfðamál og hvaða reglur gilda um erfðaskrár og kaupmála. Þá er fjallað um stöðu sambúðarfólks við fráfall maka og hverjir eru möguleikar varðandi erfðarétt.

Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður er stofnandi fyrirtækisins BÚUM VEL sem er sérhæfð lögfræðiþjónusta vegna búsetuskipa fyrir 60+ Þá veitir hún viðskiptavinum stuðning og ráðgjöf við dánarbússkipti og ýmsa löggerninga á sviði erfðaréttar. Fyrirtækið veitir nýja tegund þjónustu á íslenskum fasteignamarkaði, það er ekki fasteingasala, heldur sérhæfð lögmanns- og fjármálaþjónusta. Viðskiptavinir njóta aukinnar þjónustu við fasteignasölu, en greiða ekki aukalega fyrir þá þjónustu.

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://ja.is/?q=h%C3%A6%C3%B0argar%C3%B0ur%2031

Dagur

28.02.2023
Expired!

Tími

16:30
Uppbókað!

The event is finished.

Fyrirlesari

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content