Félagsfundur U3A Reykjavík 2. september 2025
Vetrarstarf U3A Reykjavík hefst með félagsfundi í Hæðargarði 31 þriðjudaginn 2. september kl. 16:30. Á dagskrá er stutt kynning á starfsemi U3A Reykjavík. Síðan verða umræður í litlum hópum þar sem félagar leggja fram sínar hugmyndir um fyrirlestra og viðburði sem þeir hafa áhuga á að settir verði á dagskrá á komandi mánuðum. Þannig verður til hugmyndabanki sem stjórn félagsins vinnur úr þegar viðburðir eru skipulagðir.
Kaffi og kleinur í boði.
Við hlökkum til að sjá sem flesta félaga í Hæðargarði þennan fyrsta þriðjudag í september.
Stjórn U3A Reykjavík
Staðsetning
- Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
- Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
- Website https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9
- 02.09.2025
- Útrunnið!
- 16:30
Næsti viðburður
- Sumarkveðja frá stjórn U3A Reykjavík
-
Dagur
- 10 ágú 2026
-
Tími
- 14:00