Aðalfundur U3A Reykjavík 24. mars 2026
Þriðjudaginn 24 mars kl. 16:30 verður aðalfundur U3A Reykjavík haldinn í Hæðargarði 31.
Kaffiveitingar í boði.
Dagskrá aðalfundar:
- Setning fundar
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins lagðir fram og bornir upp til samþykktar
- Umræður um starfið framundan
- Ákvörðun árgjalds
- Breytingar á samþykktum
- Kosning formanns, stjórnar og skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
Tillögur til breytinga á samþykktum skulu hafa borist formanni eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund á netfangið u3areykjavik@gmail.com
Félagar eru hvattir til að skrá sig
Aðalfundinum verður ekki streymt.
Með kveðju
Stjórn U3A Reykjavík