Vefurinn okkar, U3A.is, varð fyrir netáras í maí s.l. og setja þurfti upp þriggja mánaða gamalt afrit til að forðast að óværan leyndist í nýrri afritum.
Það var þó huggun harmi gegn að þá var vetrarstarfinu lokið og ekki nýrra frétta og tilkynninga að vænta fyrr en í lok ágúst þegar hallar að vetrarstarfi.
Vefurinn verður uppfærður með þeim gögnum sem nú vantar og vænta má að því verði lokið í júní.


