U3A

Við viljum helga tíma okkar í að fræðast og eiga skemmtilegan tíma saman.

U3A - Háskóli þriðja æviskeiðsins

Starf U3A Reykjavík fer fram með námskeiðum,  fyrirlestrum, hópastarfi, kynnisferðum og ferðalögum.

Engin skilyrði eru fyrir þátttöku og engin próf eru tekin

Í samræmi við samþykkt U3A Reykjavík hyggjast samtökin stuðla að því að félagsmenn hafi aðgang að fjölbreyttri fræðslu án þess að um formlega skólagöngu sé að ræða. Einnig vilja samtökin stuðla að virkni og aukinni vitund félagsmanna og samfélagsins um mikilvægi þriðja æviskeiðsins, tækifærin sem í því felast og mannauðinn sem í því býr. Fræðslan byggir að hluta á jafningjafræðslu þar sem félagar samtakanna deila með sér þekkingu, reynslu og færni. Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná m.a. með því að skipuleggja og sjá um fyrirlestra, námskeið, ferðir og heimsóknir og að efla kynni við aðra innan og utan U3A hreyfingarinnar hvar sem er í heiminum. Ennfremur eru félagar hvattir til að stofna hópa um viðfangsefni sem þeir velja sjálfir og taka þátt í verkefnum sem tengjast málefnum þriðja æviskeiðsins.

U3A er skammnefni Háskóla þriðja æviskeiðsins – University of the Third(3rd)  Age

Með orðinu háskóli er hér átt við upprunalegu merkingu orðsins sem er hópur fólks sem vill helga tíma sinn því að fræðast og fræða. Heiti félagsins felur ekki í sér að félagsmenn skulu vera með háskólamenntun að baki. Allir eru velkomnir sem vilja miðla og/eða bæta við sig þekkingu.

Þegar rætt er um hin mismunandi æviskeið er bernskan og unglingsárin oft kölluð fyrsta æviskeiðið, þá tekur við annað æviskeiðið sem er þá meginhluti starfsáranna með barnauppeldi, skyldur og skuldir. Þriðja æviskeiðið, sem kannski má kalla „hin gullnu fullorðinsár“ tekur svo við. Þá er átt við þann tíma fullorðinsáranna sem einkennist af minni ábyrgð en fyrr á ævinni, oft viðunandi fjárhagsstöðu og góðri almennri heilsu. Þetta æviskeið, efri ár ævinnar í starfi og eftirlaunaaldurinn, getur varað í mörg ár og áratugi og í nútíma samfélagi á fólk margra kosta völ þegar kemur að því að leita lífsfullnægju og finna sér tilgangsrík viðfangsefni. Þetta „þriðja“ æviskeið á sér tiltölulega skamma sögu og er nátengt auknum lífslíkum þjóða og mannfjöldaþróun í samfélögum nútímans. Þau ár sem tengja má þessu skeiði eru breytileg frá einum einstaklingi til annars, en starfi samtakanna U3A Reykjavík er beint að árunum eftir fimmtugt.

Fjölmennar kynslóðir eru nú að nálgast eftirlaunaaldur og eru líklegar til að breyta ásýnd hans. Lífslíkur þessara hópa eru meiri en kynslóðanna á undan, menntunarstig hærra og heilsa verður væntanlega betri en  hjá fyrri kynslóðum. Þarfir þessara hópa fyrir virkni og farsæla öldrun verða aðrar og ekki síst verður leikni til notkunar á nýrri tækni í samskiptum mun mikilvægari en áður.

Frá árinu 2014 hefur U3A Reykjavík verið aðili að AIUTA, alþjóðasamtökum U3A, alþjóðlegri hreyfingu U3A sem er til í 30 – 40 löndum og félagar skipta milljónum. Hálf öld er nú liðin frá því að fyrsti háskóli þriðja æviskeiðsins (Université du Troisième Age, U3A) var stofnaður við Félagsvísindadeild Háskólans í Toulouse í Frakklandi árið 1973.

Alþjóðasamtökin AIUTA halda árlega ráðstefnu með þátttöku aðildarþjóðanna. U3A Reykjavík hefur sent fulltrúa stjórnarinnar að jafnaði á 2ja ára fresti til þátttöku, fyrst 2013 í Svíþjóð og síðast í Tyrklandi 2023. Hverju sinni hafa fulltrúar kynnt starf og stöðu U3A á Íslandi í erindum. Stefnt er að því að halda áfram að taka þátt í alþjóðastarfinu með þessum hætti.

Scroll to Top
Skip to content