Skýrsla stjórnar U3A Reykjavík
starfsárið 2024 – 2025
Lögð fram á aðalfundi samtakanna 25. mars 2025
Stjórn og stjórnarstarf
Á aðalfundi 19. mars 2024 var Hjördís Hendriksdóttir endurkjörin formaður til eins árs.
Þórleif Drífa Jónsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Birna Sigurjónsdóttir sem kosin höfðu verið til tveggja ára 2023 héldu störfum sínum áfram. Einar Sveinn Árnason, Stefanía Traustadóttir og Vigdís Pálsdóttir voru kosin í stjórn samtakanna til tveggja ára. Emma Eyþórsdóttir og Hans Kristján Guðmundsson voru kosin varamenn.
Stjórn skipti með sér hlutverkum og starfsárið 2024 til 2025 var Birna Sigurjónsdóttir varaformaður, Stefanía Traustadóttir ritari, Guðrún Bjarnadóttir gjaldkeri og Einar Sveinn Árnason, Þórleif Drífa Jónsdóttir og Vigdís Pálsdóttir voru meðstjórnendur.
Stjórnin hefur unnið samkvæmt starfslýsingu í 8. gr. í samþykkt samtakanna og er stjórnarstarfið unnið í sjálfboðavinnu.
Stjórnin hefur haldið 11 fundi á starfsárinu. Verkaskipting var staðfest á fyrsta
stjórnarfundi eftir aðalfund. Á stjórnarfundum var almennt fjallað um starfsemi
samtakanna og hvernig megi efla þau, dagskrá og skipulag viðburða, miðlun og
upplýsingagjöf til félaga, viðhald heimasíðu, fjárhag, kynningar og samstarf við aðila innanlands sem erlendis.
Stjórnarmenn skipta með sér að leita til fyrirlesara ásamt því að sjá um undirbúning og stýra fundum í streymi og í sal. Þeir skipta einnig með sér þátttöku í hópastarfi og eru tengiliðir hópan1na við stjórnina.
U3A Reykjavík er aðili að samtökum um Almannaheill sem eru samtök
almannaheillafélaga og sjálfseignastofnana sem ætlað er að vinna að heill ótiltekins fjölda einstaklinga án hagnaðarsjónarmiða. Almannaheill hafa fundaraðstöðu í Urriðaholtsstræti 14 í Garðabæ og fær U3A Reykjavík afnot af aðstöðunni fyrir stjórnarfundi og smærri námskeið á vegum stjórnar og hópa innan félagsins.
Ársskýrsluna í heild inni er hægt að sækja efst á þessari síðu.