Heimsókn félagsmanna í Landnámssetrið í Borgarnesi. Bayeux-refillinn.

Lokaviðburður vetrarstarfsins hjá U3A Reykjavík var heimsókn í Landnámssetrið í Borgarnesi. Alls tóku 34 félagar þátt í heimsókninni og nutu sýningarinnar á söguloftinu og góðra veitinga eftir að sýningu lauk og haldið var heim á leið.

Á söguloftinu hlýddum við á frásögn Reynis Tómasar Geirssonar um sögu og tilurð Bayeux-refilsins. Refillinn er samfelld myndaröð og lýsir einni mestu orrustu sem orðið hefur á Bretlandseyjum, orustunni við Hastings árið 1066 þegar innrásarlið frá Normandí réðst inn í England og hafði sigur.  Refillinn sem er 70,34 metra langur er eitt mesta þjóðargersemi Frakka enn í dag. Reynir Tómas sagði frá  tilurð refilsins, saumaaðferðinni, – refilsaum sem er frá tímum víkinga og hvernig refillinn hefur varðveist í gegnum aldirnar. Einnig rekur hann söguna sem myndirnar á reflinum túlka.

Mjög áhugavert og fræðandi var að hlusta á frásögn Reynis sem er afar góður sögumaður og innblásinn af efninu.

Reynir Tómas er mörgum að góðu kunnur því hann var til margra ára yfirlæknir á Kvennadeild Landspítalans. Eiginkona hans Steinunn Jóna Sveinsdóttir þýddi skáldssöguna Dvergurinn frá Normandí eftir Lars-Henrik-Olsen en hún fjallar um hvernig hinn frægi Bayeux refill var saumaður í léreft að öllum líkindum í Kent á Englandi um 1076.

 

 

Scroll to Top
Skip to content