Færeyjaferð menningarhóps U3A

U3A í Færeyjum 2025-06-03

Hópur félagsfólks úr U3A Reykjavík heimsótti Færeyjar 2.-5. júní 2025. Ferðina skipulagði stýrihópur menningarhóps og þótti hún takast í alla staði vel. Við nutum leiðsagnar Jóns Ásgríms Ásgrímssonar sem fræddi okkur um staðhætti, siði og menningu. Við fórum víða um eyjarnar, heimsóttum Kirkjubæ á Straumey sem er helsti sögustaður eyjanna og biskupssetur á miðöldum, þar má m.a. sjá mikla dómkirkju reista úr steini og standa veggir enn uppi. miðaldadómkirkja í Kirkjubæ, FæreyjumVið komum í Götukirkju og Christianskirkju

Við heimsóttum Norðurlandahúsið, Þjóðminjasafnið og Listasafnið og skoðuðum okkur um í Þinganesi í Þórshöfn.  Skoðuðum víkingaaldarrústir í Kvívík og dönsuðum færeyskan dans í Gjógv á Austurey. Sérstaka athygli vakti hve samgöngur eru góðar um allar eyjarnar og þær vel tengdar með jarðgöngum.

 

Takk fyrir samveruna

Birna Sigurjónsdóttir ritar og setur inn myndir

 

Scroll to Top
Skip to content