GeoPark Folafótur. Náttúruverndarsvæði með sjálfbæru vísindasetri.

Þriðjudaginn 21. febrúar  kemur Björn Oddsson, emeritus við ETH Svissneska Ríkistækniháskólann í Zurich. til okkar með fyrirlestur um verkefni á Vestfjörðum þar sem hann fjallar um undirbúning að þjóðgarði á nesinu milli Hestfjarðar og Seyðisfjarðar í Ísafjarðardjúpi. Þetta er fjallið Hestur og láglendið þar norðan við, þ.e. Folafótur og nágrenni, sem var 80 manna útgerðarpláss á fyrri hluta 20. aldar, nú í eyði. Vaskur hópur fólks, sem á ættir að rekja til Fólafótar vinnur að málinu.

Björn fjallar um hvað Geopark er, söguna, jarðfræðina og fjölbreytta náttúru svæðisins.

Björn Oddsson er  Dr. sc.nat.ETH Ingenieurgeologe  við TETH Zürich Earth Science Department

 

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9

Dagur

21.02.2023
Expired!

Tími

16:30

The event is finished.

Fyrirlesari

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content