Heimsókn menningarhóps á Kúnstpásu
Menningarhópur efnir til heimsóknar á Kúnstpásu í Norðurljósum Hörpu
Menningarhópurinn stefnir að stund í Hörpu til að hlusta á Kúnstpásu „Dúett dagsins“ þar sem þær Hrafnhildur Björnsdóttir og Karin Thorbjörnsdóttir óperusöngkonur syngja. Martyn Parkes leikur á píanó. Tónleikarnir eru ókeypis og verða þann 24.janúar kl. 12.15 og eru yfirleitt í hálfa klukkustund. Ekki er gefið upp hvað þær syngja fyrr en á tónleikadegi.
Eftir tónleikana höfum við tekið frá borð á veitingahúsinu Hnoss á jarðhæð. Þar verður í boði Hnoss fiskisúpa með nýbökuðu brauði og smjöri. Verð: kr.3.900.-.
Tónleikarnir eru að sjálfsögðu öllum opnir en vinsamlegast skráið ykkur ef þið viljið koma með í súpuna og greiðið inn á reikning U3A Reykjavík, sjá hér neðst.
Athugið að aðeins 20 sæti eru frátekin fyrir okkur á veitingahúsinu.
Með bestu kveðju frá stýrihópi.
U3A Reykjavík.
kt: 430412-0430
reikn: 0301-26-011864.
Vinsamlegast merkið greiðsluna með kennitölu greiðanda.
Staðsetning
Dagur
- 24.01.2023
- Expired!
The event is finished.
Næsti viðburður
- Íslendingasögur sem heimild um samfélagskerfi
-
Dagur
- 26 nóv 2024
-
Tími
- 16:30