Cloacina – saga fráveitu

Þriðjudaginn 5. apríl kl. 16.30 flytur Guðjón Friðriksson sagnfræðingur erindi í Hæðargarði 31. Guðjón segir þar frá bókinni Cloacina – saga fráveitu. Í bókinni rekur Guðjón tilurð og sögu fráveitunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sú saga er um margt merkileg og áhugaverð en jafnframt flestum lítt kunn.

Félagar U3A Reykjavík eru velkomnir í sal í Hæðargarði. Skráning er ekki nauðsynleg að þessu sinni.

Guðjón Friðriksson hefur skrifað tugi bóka, þar á meðal tvö bindi Sögu Reykjavíkur, sögu Faxaflóahafna og, ásamt Jóni Þ. Þór,  sögu Kaupmannahafnar sem höfuðborgar Íslands. Sömuleiðis allmargar ævisögur, sumar í mörgum bindum. Ævisögu Jóns Sigurðssonar forseta, Jónasar frá Hriflu, og Einars Benediktssonar svo eitthvað sé nefnt.

Guðjón hefur þrisvar hlotið íslensku bókmenntaverðlaunin, ennfremur verðlaun Jóns Sigurðssonar og verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9

Dagur

05.04.2022
Expired!

Tími

16:30 - 18:00

The event is finished.

Fyrirlesari

  • Guðjón Friðriksson
    Guðjón Friðriksson
    Sagnfræðingur

    Guðjón Friðriksson er sjálfstætt starfandi rithöfundur og sagnfræðingur og liggja eftir hann fjölmörg ritverk. M.a. var hann einn af ritstjórum verksins Saga Reykjavíku.

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content