Námskeið: Gyðingar, siðir, saga og menning. Þriðji fundur

Fimmtudaginn 13. janúar kl. 16:30 verður þriðji fundur námskeiðsins: Gyðingar; saga, siðir og menning, sem er haldið af Jóni Björnssyni og Þorleifi Friðrikssyni. Á þessum fundi er farið yfir efnið: Sefardar á Spáni. Askenasar í Mið- og Austur-Evrópu. Menning, listir og bókmenntir.

Athugið að þátttakendur þurfa að skrá sig á hvern fund námskeiðsins. Miðað við samkomutakmarkanir nú mega 20 manns koma í salinn í Hæðargarði en við bendum á að fyrirlestrunum er streymt og þeir opnir í viku eftir flutning.

Auk þess að vera almenn fræðsla um Gyðinga og sögu þeirra, er gert ráð fyrir að á námskeiðinu verði undirbúin ferð um Gyðingaslóðir í (Mið)Evrópu vor/sumar/haust 2022. Námskeiðið er í fjórum hlutum, fyrirlestrum sem eru ca. 2 klst hver. Fimmti hlutinn kann að bætast við og snýst þá um skipulagningu á ferð. Þátttakendur skrá sig á hvern fyrirlestur fyrir sig. Þeim verður einnig streymt eins og venja er með fyrirlestra á vegum U3A Reykjavík

Námskeiðið er í tvö skipti í nóvember, fyrst 25. nóvember og svo 30. nóvember. Síðari hluti námskeiðsins verður tvö til þrjú skipti 13., 20. og 27. janúar 2022.

Efnisþættir námskeiðsins eru þessir (með fyrirvara):
I. Inngangur. Hver er Gyðingur. Saga Gyðinga frá upphafi til 70 e. Kr.
II. Biblían. Gyðingdómur, trú og helgisiðir, Matarhefðir
III. Sefardar á Spáni. Askenasar í Mið- og Austur-Evrópu. Menning, listir og bókmenntir. Ferð/ áfangastaðir á Gyðingaslóðum.
IV. Antisemitismi, ofsóknir og flótti. Zíonismi. Ísrael. Gyðingar á Íslandi
V. Ferð: tími, áfangastaðir.

 

 

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9

Dagur

13.01.2022
Expired!

Tími

16:30

The event is finished.

Scroll to Top
Skip to content