Jólafundur U3A Reykjavík 8. desember

jólafundur26

Þriðjudaginn 8. desember kl. 15:00 verður haldinn jólafundur U3A Reykjavík. Að þessu sinni verðum við í Hótel Reykjavík Öskju (gamla Loftleiðahótelinu).

Við fáum til okkar góða gesti sem eru Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur og Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona.

Vilborg DavíðsdóttirVilborg ætlar að kynna nýja bók sína: Vetrarbókin, sem er fróðleg og óvenjuleg bók þar sem dimmasta árstíðin er í brennidepli. Hún rýnir í sagnaheim fyrri alda, þjóðtrú og þjóðhætti, í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum, keltneskum og norrænum, að gagni í glímunni við langan og strangan íslenskan vetur. Um leið spinnur hún þræði til nútímans í ævintýraferð gegnum skammdegismyrkrið.

Guðrún Gunnarsdóttir lítur síðan við og syngur nokkur dægurlög frá sjöunda áratugnum.

Við fáum kaffi og meðlæti samkvæmt venju.

Aðgangseyrir er kr. 4.500.- sem greiðist inn á reikning U3A Reykjavík:

Reikningur U3A: 0301-26-011864

Kt:430412-0430

Jólakveðja frá stjórn U3A Reykjavík

Staðsetning
Hótel Reykjavík Askja
Hótel Reykjavík Askja
Nauthólsvegur 22, Reykjavík
08.12.2026
15:00
Ókeypis
SKRÁ ÞÁTTTAKANDA

Skrá á viðburð

Form/ticket icon icon
4.500 kr
Form/up small icon icon Form/down small icon icon
Available Miðar: 59
The "" ticket is sold out. You can try another ticket or another date.
  • 00

    dagar

  • 00

    klukkustundir

  • 00

    mínútur

  • 00

    sekúndur

Fyrirlesari

Scroll to Top
Skip to content