Rímurnar af Mábil sterku

Rímurnar af Mábil sterku. Rannsóknarsaga, höfundarleit og túlkun skáldskapar frá fjarlægum tíma.

Þriðjudaginn 19. maí kl. 16:30 kemur Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir, íslenskufræðingur til okkar í Hæðargarð 31. Hún fjallar um rímurnar af Mábil sterku.

Byrjað verður á að lýsa því hvernig svona rannsóknarvinna fer fram frá því að rannsóknarefnið er valið og hvað þarf að gera áður en hægt er að draga ályktanir um það. Rímurnar af Mábil sterku eru varðveittar í mörgum handritum, því elsta frá því um 1480, en þær höfðu aldrei verið gefnar út fyrr en nú. Margt spennandi kom í ljós sem ekki hafði verið vitað áður, meðal annars að persónan Mábil sterka virðist byggð að hluta á franskri hefðarkonu frá 11. öld en áður hafði verið talið að þær væru aðeins byggðar á íslensku ímyndunarafli, sem sagt „frumsamdar íslenskar“.

Valgerður hefur MA-próf í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hún hefur skrifað greinar um bókmenntir og birt ljóð í tímaritum og 2020 gaf hún út ljóðabókina Öldufax, sjónarrönd af landi. Valgerður rekur ferðaþjónustu á Leirubakka í Landsveit.

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9

Dagur

19.05.2026

Tími

16:30
SKRÁ ÞÁTTTAKANDA

Skrá á viðburð

Available Miðar: 80
The ticket is sold out. You can try another ticket or another date.
  • 00

    dagar

  • 00

    klukkustundir

  • 00

    mínútur

  • 00

    sekúndur

Fyrirlesari

Flokkar
Scroll to Top
Skip to content