Menningarhópurinn heimsækir Morgunblaðshúsið.
Frá Menningarhópi
Mánudaginn 23. mars munum við heimsækja Morgunblaðshúsið, Hádegismóum 2, kl. 14:00.
Karl Blöndal aðstoðarritstjóri tekur á móti okkur og segir frá starfseminni, við göngum um ritstjórnarskrifstofur og fylgjumst með starfsemi þar, sjáum umbrotsferlið og förum loks í prentsmiðjuna og sjáum hvað þar fer fram.
Eftir það býður Morgunblaðið okkur uppá kaffi og meðlæti og við ræðum upplifun okkar af því að sjá og heyra hvernig dagblað verður til.
Þessi viðburður er því endurgjaldslaus. Hafið þið áhuga á þessu þá skráið ykkur sem fyrst svo við getum látið vita hvað við verðum mörg.
Með bestu kveðju frá stýrihópi,
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Staðsetning
Næsti viðburður
- Aðalfundur U3A Reykjavík 24. mars 2026
-
Dagur
- 24 mar 2026
-
Tími
- 16:30