Breyting á samþykkt – tillaga 19.02.2026

Gerð er tillaga að breytingu á 7. grein.

Greinin hljóðar svo í núverandi samþykktum:

Stjórn samtakanna skal skipuð sjö mönnum og tveimur varamönnum.
Formaður skal kosinn til eins árs í senn og skal að hámarki gegna embætti formanns í þrjú kjörtímabil. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn og sitja að hámarki tvö kjörtímabil.  Kosið er um helming stjórnar hvert ár til þess að tryggja samfellu. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.

Stjórnin mótar stefnu samtakanna, skipuleggur starfið, annast daglegan rekstur og samræmingu og hefur umsjón með að upplýsingamiðlun sé nægileg innan samtakanna og milli hópa. Stjórnin getur haft frumkvæði að stofnun hópa. Stjórnin ber ábyrgð á útgáfumálum, þ.m.t. heimasíðu samtakanna og kynningu samtakanna. Einnig hefur stjórnin forystu í samskiptum við önnur samtök U3A í heiminum. Meiri hluti stjórnar ritar firma samtakanna.

Stjórnarfundir skulu haldnir eftir þörfum, þó ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári.

Stjórnarfundur er lögmætur ef meirihluti stjórnar er viðstaddur.  Boða skal varamenn sem hafa málfelsi og tillögurétt á fundum en ekki atkvæðisrétt, nema þeir taki sæti aðalmanns.

Gerð er tillaga að breytingu á 7. grein

Þar sem kveður á um um setu formanns og stjórnarmanna að hámarki standi að jafnaði. Upphaf greinarinnar verði þannig eftir breytingu:

Stjórn samtakanna skal skipuð sjö mönnum og tveimur varamönnum.
Formaður skal kosinn til eins árs í senn og skal að jafnaði gegna embætti formanns í þrjú kjörtímabil. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn og sitja að jafnaði tvö kjörtímabil.

Rökstuðningur:

Mikilvægt er að sveigjanleiki sé fyrir hendi og við missum ekki út stjórn þau sem eru áhugasöm og tilbúin að gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku eða stjórnarsetu. Viðmið um  tímalengd er jafnframt áfram í samþykktunum.

 

Scroll to Top
Skip to content