Mr. Skallagrímsson – menningarhópur heimsækir Landnámssetur

Síðasti fundur Menningarhóps á þessum vetri verður haldinn í Borgarnesi sunnudaginn 17. maí á Landnámssetrinu. Við ætlum að heyra og sjá Benedikt Erlingsson segja okkur Egilssögu á sinn hátt, í sýningu sem hann kallar  Mr.Skallagrímsson.

Sýningin hefst klukkan 16.00 og við leggjum af stað með rútu frá Hæðargarði kl.14.30. Eftir sýningu borðum við kvöldmat á Landnámssetrinu og ræðum upplifun okkar af sýningunni ofl.

Áætluð heimkoma er 20.30 að Hæðargarði.

Verð fyrir þennan viðburð er 10.500 krónur.

Vinsamlegast bókið og greiðið sem fyrst, því við þurfum að láta vita um fjölda með góðum fyrirvara á Landnámssetrinu og rútufyrirtækinu.

Reikningur U3A: 0301-26-011864

Kt:430412-0430

Með kærri kveðju frá stýrihópi,

Ingibjörg Ásgeirsdóttir

Staðsetning
Landnámssetrið Borgarnesi
Landnámssetrið Borgarnesi
Brákarbraut 13 - 15, 310 Borgarnes
17.05.2026
Útrunnið!
14:30

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content