Vefur í sárum

Vefurinn okkar, U3A.is,  varð fyrir netáras í maí s.l. og setja þurfti upp þriggja mánaða gamalt afrit til að forðast að óværan leyndist í nýrri afritum.

Það var þó huggun harmi gegn að þá var vetrarstarfinu lokið og ekki nýrra frétta og tilkynninga að vænta fyrr en í lok ágúst þegar hallar að vetrarstarfi. 

Vefurinn verður uppfærður með þeim gögnum sem nú vantar og vænta má að því verði lokið í júní.

Scroll to Top
Skip to content