Andlegt líf eldri borgara – tveggja daga námskeið

U3A Reykjavík býður upp á námskeið um andlegt líf eldri borgara dagana 22. og 23. október. Námskeiðið er haldið í Hæðargarði 31 sunnudaginn 22. október kl. 13-16 og mánudaginn 23. október kl. 16-19. Kaffi í hléi. Umsjónarmaður er Stefán Jökulsson.

Kjör og framfærslumál geta vissulega haft áhrif á andlegt líf okkar eldri borgara en á þessu námskeiði leitum við svara við spurningum sem snerta líf okkar og tilveru í víðara samhengi.

Stefán Jökulsson umsjónarmaður námskeiðsins, er 73 ára gamall eftirlaunamaður, fyrrverandi lektor við Háskóla Íslands og útvarpsmaður á sínum tíma. Hann lauk nýlega rannsóknartengdu MA námi við Háskólann á Akureyri um andlegt líf (spirituality) og snerti rannsókn hans meðal annars andlegt líf eldri borgara.

 Þátttakendur hittast tvo daga í röð, í um þrjár klukkustundir í hvort sinn. Hvorn dag kynnir Stefán tvö umræðuefni og svo ræða þátttakendur möguleg svör við spurningum sem tengjast þeim. Þátttakendur á námskeiðinu geta einnig haft áhrif á það efni sem um er rætt.

 Dæmi um spurningar:

  • Erum við sátt við andlegt líf okkar og líðan á þessu aldursskeiði? Hvað gæti orðið til þess að okkur liði betur.
  • Er hugsanlegt að hugmyndir (fordómar?), okkar sjálfra eða yngri kynslóða, þyngi róðurinn hjá okkur á síðasta æviskeiðinu?
  • Hvernig sinnum við eldri borgarar tilfinningalífi okkar? Er eitthvað sem reynist okkur sérlega erfitt hvað það varðar?
  • Er hugsanlegt að umhyggja gagnvart okkur eldri borgurum dragi stundum úr hugrekki okkar og virkni?

Í upphafi námskeiðsins ræðum við um tilhögun umræðunnar og hvernig við höldum innihaldi hennar til haga. En við getum endurskoðað fyrirkomulagið í lok fyrri dagsins ef við teljum það nauðsynlegt.

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9

Dagur

22.10.2023
Expired!

Tími

13:00 - 16:00
Uppbókað!

The event is finished.

Fyrirlesari

  • Stefán Jökulsson
    Stefán Jökulsson
    fræðimaður

    Stefán Jökulsson umsjónarmaður námskeiðsins, er 73 ára gamall eftirlaunamaður, fyrrverandi lektor við Háskóla Íslands og útvarpsmaður á sínum tíma. Ég lauk nýlega rannsóknartengdu MA námi við Háskólann á Akureyri um andlegt líf (spirituality)

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content