Vestmannaeyjaferð menningarhóps 7. september 2023
Vestmannaeyjaferð menningarhóps 7. september
Vestmanneyjaferðin er nú aftur á dagskrá fimmtudaginn 7. september en hún féll niður sl. vor vegna veðurs og sjólags.
Lagt verður af stað með rútu frá Hæðargarði kl 8.15 og áætluð heimkoma er kl. 22.00
Ekið verður að Landeyjarhöfn og þaðan siglt til Eyja. Þá tekur við bæjarrölt með möguleika á hádegishressingu. Síðan tekur við skoðunarferð um Heimaey undir leiðsögn Kristínar Jóhannsdóttur og hún mun svo líka sýna okkur safnið Eldheima, en þar er hún forstöðumaður. Á safninu fáum við svo kvöldverð frá Einsa kalda og Magnús R. Einarsson mun skemmta okkur með Eyjatónlist.
Verð fyrir ferðina er kr.19.800 og allt er innifalið nema hádegissnarl.
Sjá nánar í meðfylgjandi dagskrá.
Vestmannaeyjar 7. sept. 2023
Vinsamlegast greiðið um leið og þið skráið ykkur. Greiðsla gildir sem staðfesting á þátttöku.
U3A Reykjavík
kt: 430412-0430
reikn: 0301-26-011864
Með bestu kveðju frá stýrihópi.
Staðsetning
Dagur
- 07.09.2023
- Expired!
The event is finished.
Næsti viðburður
- Samsæriskenningar
-
Dagur
- 08 okt 2024
-
Tími
- 16:30