Áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi
Halldór Björnsson veðurfræðingur heldur fyrirlestur um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi þriðjudaginn 28. nóvember kl. 16:30 í Hæðargarði. Farið verður yfir niðurstöður nýútkominnar skýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi. Meðal þess sem kemur fram er að loftslagsbreytingar hafa haft umtalsverð áhrif á náttúru Íslands, s.s. afkomu jökla, vatnafar, lífríki á landi og aðstæður í sjó.
Veðurfar og náttúruaðstæður á landinu og í hafinu umhverfis það verða í lok aldarinnar án fordæma frá upphafi byggðar á Íslandi. Súrnun sjávar og hlýnun munu breyta umhverfisaðstæðum og útbreiðslusvæðum tegunda í hafi.
Umtalsverð áhrif loftslagsbreytinga á atvinnuvegi, byggða innviði og efnahag skapa verulegar áskoranir, jafnvel í geirum þar sem viðbrögð við hlýnun geta haft jákvæð áhrif í för með sér. Sjávarstöðubreytingar og aukin náttúruvá geta aukið samfélagslegt tjón og áhrif loftslagsbreytinga erlendis skapað umtalsverða kerfisáhættu hérlendis, t.d. með áhrifum á aðfangakeðjur, fæðuöryggi og lýðheilsu. Loftslagsbreytingar eru stærsta heilsufarsógn sem mannkynið stendur frammi fyrir.
Loftslagsvandinn er efnahagsmál sem mun hafa áhrif á verðlag, fjármálastöðugleika og öryggi fjármálakerfisins. Aðlögun að og viðbrögð við loftslagsbreytingum hafa í för með sér áskoranir sem krefjast umbyltingar í neyslu, iðnaði og tækni. Áhrif loftslagsbreytinga ná meðal annars til félagslegra innviða, menningar, sjálfsmyndar þjóðar og vekja upp siðferðilegar spurningar gagnvart öðrum þjóðum, komandi kynslóðum og vistkerfum.
Halldór Björnsson er haf- og veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á sviði veðurfræði, veðurfarsfræði, haffræði, hafísfræði og loftslagskerfisfræði.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 28.11.2023
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Fyrirlesari
-
Halldór BjörnssonHaf- og veðurfræðingur
Doktor í haf- og veðurfræði. Starfar á Veðurstofu Íslands.
Næsti viðburður
- Samsæriskenningar
-
Dagur
- 08 okt 2024
-
Tími
- 16:30