Gleðilegt ár!
Við stefnum að fjölbreyttum fyrirlestrum í janúar eins og áður, sá fyrsti verður þriðjudaginn 11. janúar og þá ætlar Jóhanna Jakobsdóttir, líftölfræðingur að koma til okkar og ræða stöðuna í Covid faraldrinum. Fimmtudaginn 13. janúar verður þriðji fundur í námskeiði Jóns Björnssonar og Þorleifs Friðrikssonar um Gyðinga, siði, sögu og menningu. Námskeiðið heldur svo áfram 20. janúar og 27. janúar verður fundur um hugsanlegt ferðalag á Gyðingaslóðir.
Þriðjudaginn 18. janúar kemur Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur til okkar og fjallar um jákvæða sálfræði og 25. janúar verður erindi um smitsjúkdóma með áherslu á mislinga og það er Erla Dóris Halldórsdóttir doktor í sagnfræði sem flytur það.
Á heimasíðu okkar u3a.is hefur nú verið birt yfirlit yfir fyrirlestra á vegum félagsins sl. tvö ár eða frá hausti 2020: https://u3a.is/yfirlit-fyrirlestra-u3a-reykajvik/
Sjáumst á komandi ári!
Stjórn U3A Reykjavík