Saga Bayeux refilsins
Saga Bayeux refilsins
Þriðjudaginn 14. apríl kl. 16:30 kemur Reynir Tómas Geirsson til okkar í Hæðargarðinn og greinir frá tilurð Bayeux refilsins, saumaaðferðinni, – refilsaum sem er frá tímum víkinga og hvernig refillinn hefur varðveist í gegnum aldirnar. Einnig rekur hann söguna sem myndirnar á reflinum túlka.
Refillinn er samfelld myndaröð og lýsir einni mestu orrustu sem orðið hefur á Bretlandseyjum, orustunni við Hastings árið 1066 þegar innrásarlið frá Normandí réðst inn í England og hafði sigur. Refillinn sem er 70,34 metra langur er eitt mesta þjóðargersemi Frakka enn í dag.
Reynir Tómas Geirsson, prófessor emeritus var áður yfirlæknir á Landspítala Háskólasjúkrahúsi.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 14.04.2026
Tími
- 16:30
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Fyrirlesari
-
Reynir Tómas Geirssonprófessor emeritus