Menningarhópur – námskeið/vínsmökkun
Menningarhópur
Næsti viðburður menningarhóps verður námskeið/vínsmökkun á Aldamót bar, Kirkjutorgi 4, miðvikudaginn 29.nóvember kl: 17.00.
Þar tekur á móti okkur Stefán Guðjónsson, einn af fremstu vínsérfræðingum landsins. Hann kynnir okkur fjórar tegundir af rauðvíni og fjórar þrúgur og hvernig á að lykta af og smakka vín. Einnig útskýrir hann muninn á vínþrúgunum og hvaða matur fer best með hvaða þrúgu. Í lokin er svo tími fyrir spurningar hópsins til Stefáns um eitt og annað sem okkur langar að vita um vín.
Með víninu fáum við kjöt-og ostabakka og samtals kostar þetta kr. 7.850.
Vinsamlegast bókið ykkur sem fyrst því við verðum að láta vita um fjölda þátttakenda með góðum fyrirvara. Við biðjum ykkur einnig að greiða um leið og þið skráið ykkur. Greiðslan gildir sem staðfesting á bókun.
Greiðið inn á reikning U3A Reykjavík
301-26-011864.
Kt: 430412-0430
Með bestu kveðju frá stýrihópi,
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Staðsetning
Dagur
- 29.11.2023
- Expired!
The event is finished.
Næsti viðburður
- Viltu tileinka þér vínlausan lífsstíl?
-
Dagur
- 07 jan 2025
-
Tími
- 16:30