Íslenskar lækningajurtir ‐ söfnun, verkun og notkun
Íslenskar lækningajurtir ‐ söfnun, verkun og notkun
Þriðjudaginn 28. apríl kl. 16:30 kemur Steinn Kárason í Hæðargarð 31 og fjallar um algengar íslenskar drykkjar- og lækningajurtir og leiðbeinir um söfnun þeirra, verkun, geymslu og notkun. Hann stiklar á stóru í sögulegu samhengi og leggur áherslu á sjálfbærni og virðingu við náttúruna. Söfnun jurta í fögru umhverfi er ánægjulegt og lærdómsríkt viðfangsefni og kjörið fyrir samhentar fjölskyldur, unga sem aldna.
- Tíu algengar íslenskar lækningajurtir sem um aldir hafa verið nytjaðar og taldar viðhalda‐ og efla heilbrigði.
- Tilsögn í að útbúa jurtate, heilsueflandi grasaseyði og hvannasúpu.
- Innsýn í þróun og sögu grasalækninga og rannsóknir sem styðja reynslu forfeðranna.
- Leiðbeiningar um hvernig nytja má íslensk grös án þess að ganga á gjafir jarðarinnar.
- Hvar afla má upplýsinga um íslenskar drykkjar- og lækningaplöntur.
Steinn Kárason er M.sc. í umhverfis‐ og auðlindahagfræði, garðyrkjumeistari og hefur kennt við háskólana á Akureyri og Bifröst. Hann hefur ritað fræðibækur, skáldverk og fjölda blaðagreina, samið tónlist og unnið að dagskrárgerð fyrir sjónvarp og útvarp. Steinn er bókaútgefandi, framkvæmdastjóri‐ og frumkvöðull að endurheimt hinna fornu Brimnesskóga í Skagafirði.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 28.04.2026
Tími
- 16:30
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Fyrirlesari
-
Steinn Kárasonumhverfis‐ og auðlindahagfræðingur og garðyrkjumeistari