Að fá að ráða eigin lífslokum – fyrirlestur um dánaraðstoð

Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð kemur til okkar í Hæðargarð 31 þriðjudaginn 21. október kl. 16:30 með fyrirlestur um dánaraðstoð.
Faðir Ingridar var meðal þeirra fyrstu í Hollandi til að fá dánaraðstoð (á löglegan hátt) í apríl 2002, aðeins ellefu dögum eftir að lögin um dánaraðstoð þar í landi tóku gildi. Í fyrirlestrinum mun Ingrid segja sögu föður síns og ræða þetta mikilvæga og viðkvæma málefni.
Ingrid er formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð, sem var stofnað 2017. Félagið hefur það að markmiði að stuðla að opinni, uppbyggilegri og víðtækri umræðu um dánaraðstoð og vinna að því að samþykkt verði löggjöf sem heimilar dánaraðstoð við vel skilgreindar aðstæður og að uppfylltum ströngum skilyrðum. Með því yrði dánaraðstoð mannúðlegur valkostur fyrir þá sem kjósa að deyja á eigin forsendum.

Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 21.10.2025
Tími
- 16:30
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Fyrirlesari
-
Ingrid Kuhlman
Formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð
Næsti viðburður
- Menningarhópur heimsækir Ásmundarsafn
-
Dagur
- 23 okt 2025
-
Tími
- 14:00