Gyðingaslóðir - Spurt og svarað
Hver sér um fararstjórn?
- Söguferðir, Þorleifur Friðriksson og Jón Björnsson í samráði við stjórn U3A Reykjavík.
Hvenær verður farið?
- Þegar pest lægir og friður kemst á.
Hver er áætluð tímalengd ferðarinnar?
- Líklega 10-15 dagar.
Hver er áætlaður ferðakostnaður?
- Ekki hægt að svara fyrr en tímasetning liggur fyrir, en gætt verður hagkvæmi.
Á hvaða staði verður farið?
- Tillögur farastjóra er að litið verði til Berlínar, Prag, Varsjár, Kraká, Wroclaw, Łódź.
- Sjá nánar drög að ferðaáætlun
Hvernig verður ferðast milli áfangastaða?
- Gert er ráð fyrir að hópurinn verði með rútu á sínum vegum og hafi þannig möguleika á að skipuleggja ferðina eftir því sem vindar blása.
Hafirðu spurningar til fararstjóra, getur þú komið þeim á framfæri með því að senda tölvupóst til u3areykjavik@gmail.com
Efnisorð (subject): Fyrirspurn vegna ferðar um Gyðingaslóðir