Þriðjudaginn 24. mars var haldinn aðalfundur U3A í hæðargarði 31. Þar komu saman 35 félagsmenn, til aðalfundarstarfa. Fráfarandi formaður Hjördís Hendriksdóttir flutti skýrslu stjórnar sem birt verður á heimasíðu félagsins, þar kom meðal annars fram að á starfsárinu hefur félagið staðið fyrir 52 viðburðum, þar af 29 þriðjudagsfyrirlestrum og þremur námskeiðum um gervigreind. Auk þess hefur hópastarfið verið mikilvægur þáttur í starfinu og fréttabréf kemur út í hverjum mánuði.
Stefanía Traustadóttir var kjörin nýr formaður og aðrir í stjórn eru Einar Sveinn Árnason, Vigdís Pálsdóttir, Þórleif Drífa Jónsdóttir, Edda Lilja Sveinsdóttir, Jón Ragnar Höskuldsson og Birna Sigurjónsdóttir. Varamenn eru Hans Kristján Guðmundsson og Hjö
rdís Hendriksdóttir. í lok fundar urðu líflegar umræður um starfið framundan.


