Páskafrí U3A og viðburðir framundan
U3A Reykjavík – Háskóli þriðja æviskeiðsins tekur páskafrí að venju og því verða engir þriðjudagsfyrirlestrar 31. mars og 7. apríl.
Þriðjudagsfyrirlestrarnir hefjast svo aftur þriðjudaginn 14. apríl þegar Reynir Tómas Geirsson flytur fyrirlestur um Bayeux-refilinn. 21. apríl fáum við svo fyrirlestur um fugla og fuglaskoðun sem Daníel Bergmann ljósmyndari flytur.
Aðrir fyrirlestrar verða auglýstir fljótlega.
Stjórn U3A óskar félagsfólki gleðilegra páska!
|