BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv6.11.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-fb3a30a2e3e8abdcbf63f0aaaadb06e4@u3a.is
DTSTART:20220519T110000Z
DTEND:20220519T123000Z
DTSTAMP:20220515T114700Z
CREATED:20220515
LAST-MODIFIED:20220515
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Ganga um Laugarnes og Kirkjusand fimmtudaginn 19. maí
DESCRIPTION:Nú er komið að göngu um Laugarnesið og Kirkjusand fimmtudaginn 19. maí kl. 11:00. Þar verður menningararfurinn skoðaður og mun Hörður Gíslason leiða okkur. Hörður hefur starfað hjá Reykjavíkurborg í um 50 ár, m.a. á því svæði sem gengið er um. Hann er áhugamaður um útivist og sögu.\nÞetta er sama ganga og farin var sl. haust.\nLeiðin að menningararfinum í Laugarnesinu og Kirkjusandi er auðveld ganga fyrir fimmtíu ára og eldri og tekur um eina til eina og hálfa klukkustund. Þátttakendur geta aðeins verið 20 talsins og er því nauðsynlegt að skrá sig í gönguna hér.\nUpphaf göngunnar er hjá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesinu og er hægt að leggja bílum hjá safninu.\nGangan er ein af fimm íslensku leiðum sem voru skráðar með Wikiloc appinu í alþjóðlega HeiM verkefninu sem U3A Reykjavík tók þátt í. Hönnuðir leiðar um Laugarnes og Kirkjusand eru Hörður Gíslason, Elsa Ísfold Arnórsdóttir og Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir.\nMikill menningararfur felst í byggðinni í Laugarnesi og á búseta þar sögu allt aftur á landnámsöld þegar Laugarnesjörðin byggðist út frá landnámsjörðinni Vík fyrir vestan. Má ætla að náttúrugæði, gott land til ræktunar, bitlendi, sjóræði frá vörinni við Viðeyjarsund og eyjar fyrir utan hafi ráðið miklu og ekki spillti fagurt útsýni til fjalla. Auk Laugarnesbæjarins, sem var setinn langt fram á tíunda áratugs síðustu aldar, byggði biskup þar sína Laugarnesstofu og danskir Oddfellowar Holdsveikraspítala á nítjándu öldinni. Braggahverfi reis við Kirkjusand í seinni heimsstyrjöldinni. Í dag er í Laugarnesinu listasafn og íbúðir. Kirkjusandur á sér styttri sögu en varð á fyrri hluta 20. aldrar athafnasvæði stórhuga manna sem byggðu þar hús fyrir kjöt- og fiskvinnslu, hús sem sum hver standa enn, en hafa fengið nýtt hlutverk. Á lóðinni á horni Kringlumýrarbrautar og Sundlaugavegar var áður m.a. fiskvinnsla, fangelsi hermanna á stríðsárunum og athafnasvæði Strætó.\nNánar má fræðast um leiðina hér: https://u3a.is/laugarnes-i-reykjavik/ ( https://u3a.is/laugarnes-i-reykjavik/ )\n
URL:https://u3a.is/vidburdir/ganga-um-laugarnes-og-kirkjusand/
CATEGORIES:000 Almennt efni,Erindi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2021/02/Laugarnes-1200x630-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
