BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv6.11.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-c67ba7c4c5c0cd4cc3e3a7146fe5c015@u3a.is
DTSTART:20220514T110000Z
DTEND:20220514T120000Z
DTSTAMP:20220509T110200Z
CREATED:20220509
LAST-MODIFIED:20220509
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Gönguleið í náttúrunni í Elliðaárdal – Laugardagsganga 14. maí
DESCRIPTION:Næsta Laugardagsganga U3A Reykjavík verður 14. maí, kl.11:00 sem að þessu sinni er ganga í náttúrunni í Elliðaárdal.\nLeiðsögumaður er Birgir Jónsson.\nUpphaf göngunnar er við stöðvarhús Elliðaárvirkjunar í Elliðaárdal.\nÁ göngunni um náttúruna í  Elliðaárdal verður meðal annars skoðuð hraunmyndun, „Indjánagilið“, fylgt gömlu þjóðleiðinni til Reykjavíkur og komið við í Árbæjarsafni.\nGangan hefst við stöðvarhús Elliðaárvirkjunar í Elliðaárdal og henni lýkur rétt fyrir neðan Reiðskarð við heimili og vinnustofu eins þekktasta listmálara landsins af yngri kynslóðinni, Georgs Guðna heitins. Gangan er um 4,8 km að lengd og miðlungs erfið. Gott bílastæði er við upphafsreit og strætó nr. 24 stoppar við Árbæjarsafn. Þátttakendur geta aðeins verið 25 talsins og er því nauðsynlegt að skrá sig í gönguna.\nÞessi ganga var áður farin á vegum U3A Reykjavík sl. haust.\nGangan er ein af fimm íslenskum leiðum sem voru skráðar með Wikiloc appinu í alþjóðlega HeiM verkefninu sem U3A Reykjavík tók þátt í. Hönnuðir leiðar um náttúruna í Elliðaárdal eru Birgir Jónsson og Dagrún Þórðardóttir. Nánari upplýsingar um leiðina er að finna á þessari slóð  ( https://www.wikiloc.com/walking-trails/heim-gonguleid-i-natturunni-i-ellidaardal-isl-51278815 )\nElliðaárdalur er vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur og stærsta græna svæðið í borginni. Dalurinn býður upp á fjölbreytt umhverfi hvað varðar landslag, jarðfræði, fugla, fisk og gróður, en Elliðaárnar eru þó þungamiðja svæðisins. Í dalinn leitar fjöldi fólks allt árið, sérstaklega úr hverfunum í nágrenninu. Í norðurjaðri dalsins er Árbæjarsafn, sem er byggðasafn Reykjavíkur, staðsett á býlinu Árbæ, þar sem var rekin gisti og veitingaþjónusta um aldir, fyrir bændur, sem voru að reka kvikfé til Reykjavíkur til slátrunar, ásamt því að selja aðrar afurðir.\n
URL:https://u3a.is/vidburdir/gonguleid-i-natturunni-i-ellidaardal-laugardagsganga/
CATEGORIES:000 Almennt efni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2021/09/Ellidaardalur-1200x630-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
