BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.33.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20260617T014534
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-3e441eec3456b703a4fe741005f3981f@u3a.is
DTSTART;TZID=UTC:20220222T163000
DTEND;TZID=UTC:20220222T180000
DTSTAMP:20220209T142923Z
CREATED:20220209
LAST-MODIFIED:20220221
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Kína: Sögur móta manninn
DESCRIPTION:Þriðjudaginn 22. febrúar kl. 16:30 mun Hjörleifur Sveinbjörnsson fræða okkur um kínverska menningu og listir í erindi sem hann kallar Kína: Sögur móta manninn.\nTitillinn á að vísa til þess að öldum saman rötuðu anekdótur, dæmisögur og síðar skáldverk til ólæsrar alþýðu manna í gegnum flutning á tehúsum, síðar Peking-óperunni og enn síðar kvikmyndum og þáttaröðum. Þessi sterka hefð hefur mótað upplifun fólks og búið til sameiginlegan skilning á eigin sögu.\nHjörleifur Sveinbjörnsson stundaði ýmis störf til sjós og lands að loknu stúdentsprófi. Hann fékk kínverskan námsstyrk 1976 og stundaði nám í kínversku í eitt ár við Tungumálaskóla Beijingborgar, en síðan tók við fjögurra ára háskólanám við Pekingháskóla í kínversku og kínverskum og asískum bókmenntum, sem lauk með BA-prófi í þessum greinum 1981.\nEftir heimkomu hefur hann þýtt Villta svani eftir Jung Chang, tekið saman sýnisbók kínverskra frásagnarbókmennta, Apakóngur á Silkiveginum (2008), en fyrir þá bók hlaut Hjörleifur Íslensku þýðingarverðlaunin 2009. Nú síðast liggur eftir hann bókin Meðal hvítra skýja (2021), en sú bók er þýðing á stuttum kvæðum og vísum frá Tang-tímanum (618-907). Hjörleifur hefur einnig kennt ýmis námskeið um kínversk málefni við HÍ, HR, Endurmenntun háskólans, Menntaskólann við Hamrahlíð og Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.\n \n
URL:https://u3a.is/vidburdir/kina-menning-og-listir/
CATEGORIES:Erindi
LOCATION:Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2022/02/Hjorleifur-einkmynd-1200x.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
