BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv6.11.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-2bf5e202fc973a02f417dc9af000177b@u3a.is
DTSTART:20211123T163000Z
DTEND:20211123T180000Z
DTSTAMP:20211105T180900Z
CREATED:20211105
LAST-MODIFIED:20211115
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Falsfréttir og upplýsingaóreiða: Hver er staðan á Íslandi?
DESCRIPTION:Þriðjudaginn 23. nóvember kl. 16:30 flytur Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, erindi um falsfréttir og upplýsingaóreiðu.\nMikið hefur verið rætt um falsfréttir og upplýsingaóreiðu undanfarin misseri. Í erindinu fjallar Jón Gunnar um hvað þessi hugtök þýða nákvæmlega og hvernig dreifing á röngum og misvísandi upplýsingum hefur breyst með tilkomu samfélagsmiðla eins og Facebook og Twitter. Jafnframt ræðir hann um hvað rannsóknarniðurstöður segja okkur varðandi stöðu mála á Ísland. Er mikið af falsfréttum og upplýsingaóreiðu á Íslandi í samanburði við önnur ríki? Jón Gunnar skoðar málin út frá niðurstöðum á rannsóknum um upplýsingamiðlun um COVID-19, en hann sat í vinnuhópi þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 á Íslandi í fyrra. Hann tekur einnig dæmi úr rannsókn á nýafstaðinni kosningabaráttu hér á landi, en Jón Gunnar situr í stjórn Íslensku kosningarannsóknarinnar og sér um fjölmiðlahluta hennar.\nSkýrslu vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 má nálgast hér: https://www.stjornarradid.is/library/01–Frettatengt—myndir-og-skrar/FOR/Fylgiskjol-i-frett/Skyrsla_uppl.oreidacovid19_25.10.20.pdf ( https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/FOR/Fylgiskjol-i-frett/Skyrsla_uppl.oreidacovid19_25.10.20.pdf )\nJón Gunnar Ólafsson er nýdoktor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hann lauk doktorsprófi í fjölmiðlafræði árið 2019 frá Goldsmiths, University of London. Doktorsrannsóknin hans fjallaði um miðlun stjórnmálaupplýsinga í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum og var styrkt af Economic and Social Research Council í Bretlandi. Jón Gunnar hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra rannsóknaverkefna um fjölmiðla og stjórnmál, þar á meðal the Media for Democracy Monitor og the Worlds of Journalism Study. Hann hlaut þriggja ára rannsóknastöðustyrk úr Rannsóknasjóði (Rannís) árið 2021 þar sem hann beinir sjónum sínum meðal annars að upplýsingaóreiðu og fjölmiðlaumfjöllun um íslensk stjórnmál og COVID-19. Jón Gunnar tók sæti í stjórn Íslensku kosningarannsóknarinnar (ÍSKOS) fyrr á þessu ári og sér um fjölmiðlahluta hennar.\n \n \n
URL:https://u3a.is/vidburdir/falsfrettir-og-upplyssingaoreida-hver-er-stadan-a-islandi/
CATEGORIES:000 Almennt efni,100 Heimspeki, sálfræði,170 Siðfræði,300 Félagsvísindi,360 Félagsleg vandamál og þjónusta,600 Tækni og hagnýt vísindi,Erindi
LOCATION:Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2021/11/Upplysingaoreda-1200x630-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
