BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.33.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20260617T024645
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-db68512896941514a089c37392f0683b@u3a.is
DTSTART;TZID=UTC:20210815T163000
DTEND;TZID=UTC:20210815T180000
DTSTAMP:20210531T151228Z
CREATED:20210531
LAST-MODIFIED:20210531
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Frá stjórn U3A Reykjavík
DESCRIPTION:Frá stjórn U3A Reykjavík – fjölbreyttir fyrirlestrar og streymi\nFélagið tók upp þá nýbreytni haustið 2020 að streyma þriðjudagsfyrirlestrum til félagsmanna. Stjórnarmenn hafa séð um útsendingarnar undir styrkri stjórn Jóns Ragnars Höskuldssonar sem sér um tæknimálin. Það hefur verið mikið og ánægjulegt lærdómsferli að taka þátt í þessari þróun.\nÞegar samkomutakmarkanir voru sem mestar og salurinn í Hæðargarði lokaður streymdum við fyrirlestrum úr heimahúsi þar sem aðeins fundarstjóri, tæknistjóri og fyrirlesari voru saman komnir, reyndar voru fyrirlesarar stundum á sínum heimavelli og jafnvel staddir erlendis og fluttu fyrirlestra sína þaðan. Okkur fannst mikilvægt að halda útsendingum áfram og þar með halda tengslum við félagsmenn og aldrei var það mikilvægara en einmitt þegar lokun var mest í samfélaginu.\nFélagsmenn fengu senda vefslóð á fyrirlesturinn og gátu tengst útsendingum í rauntíma kl. 16:30 á þriðjudögum en einnig horft á upptöku af fyrirlestrinum vikuna eftir að hann var fluttur.\nFélagsmenn hafa sannarlega tekið streyminu vel og þátttaka verið mikil. Að meðaltali hafa um 140 manns notið hvers fyrirlestur þegar tekið er saman samtíma áhorf og áhorf eftir á og mest hafa 216 manns tengst einum fyrirlestri. Það er því ljóst að við munum halda áfram að streyma fyrirlestrum ásamt því að bjóða félagsmenn aftur velkomna í sal þegar haustdagskráin hefst.\nStjórnin hefur eins og áður leitast við að hafa fyrirlestrana fjölbreytta til að mæta áhugasviði sem flestra félagsmanna. Félagið hefur notið velvildar hjá fyrirlesurum sem hafa verið fúsir til að koma til okkar og miðla fræðslu og þekkingu sinni til félagsmanna U3A Reykjavík. Fyrirlesarar eiga þakkir skildar fyrir sitt framlag.\nHeimsóknir í stofnanir og fyrirtæki, námskeið og hópastarf hafa legið niðri í vetur vegna Covid19 en í haust tökum við upp þráðinn af fullum krafti. Á haustönn áætlum við að halda námskeið um sögu og menningu Gyðinga sem Jón Björnsson og Þorleifur Friðriksson sjá um. Einnig verður námskeið um gerð gönguleiða í Wikiloc sem Einar Skúlason sér um. Sömuleiðs væntum við þess að hópastarf geti hafist í september. Allt verður þetta auglýst þegar nær dregur.\nFélagsfundur verður á dagskrá 7. september og þá gefst félagsmönnum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sínum og tillögum um vetrarstarfið. Ég hlakka til samstarfsins við ykkur félagsmenn á komandi hausti.\nBirna Sigurjónsdóttir\nFormaður U3A Reykjavík\n \n \n \n \n \n
URL:https://u3a.is/vidburdir/fra-stjorn-u3a-reykjavik/
CATEGORIES:Erindi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2021/05/Jón-Bjornsson-og-Babelsturninn-1012x629-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
