BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.33.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20260617T040412
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-17d8da815fa21c57af9829fb0a869602@u3a.is
DTSTART;TZID=UTC:20210531T163000
DTEND;TZID=UTC:20210531T180000
DTSTAMP:20210326T143542Z
CREATED:20210326
LAST-MODIFIED:20210501
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Viðburðir í maí
DESCRIPTION:Viðburðir í maí á vegum U3A Reykjavík\nNú liður að lokum vetrardagskrár hjá U3A Reykjavík enda vorið komið. Við höldum áfram að streyma fræðslufyrirlestrum þriðjudaga í maí kl. 16:30 eða fram að hvítasunnu en þá verður hlé á fyrirlestrahaldi þar til í haust.\nÞriðjudaginn 4. maí kynnir Borgþór Arngrímsson, fréttaritari Kaupmannahöfn með augum Íslendings. Borgþór bjó í 11 ár í Kaupmannahöfn, fyrst um þriggja ára skeið fyrir 40 árum og síðan í átta ár frá 2010. Miklar breytingar hafa orðið á dönsku samfélagi á þessum tíma, og Kaupmannahöfn er gjörbreytt. Borgþór ætlar að spjalla vítt og breytt um Kaupmannahöfn og danskt samfélag á tímum örra breytinga.\nSigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur og fréttamaður kemur til okkar 11. maí og kynnir skáldsögu sína Eldarnir- ástin og aðrar hamfarir sem hlaut óvænta athygli þegar jarðhræringar og eldsumbrot hófust nýverið á Reykjanesskaga. Bókin kom út örfáum mánuðum áður og lýsir að nokkru leyti svipaðri atburðarás. Hún les úr bókinni og fjallar um tilurð hennar og glímuna við jarðvísindin og skáldskapinn.\nSíðasta fyrirlesturinn 18. maí flytur Ingibergur Þorkelsson eigandi og skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands. Hann  nefnir erindið Innbyggður læknir og segir: Ímyndaðu þér að þú hafir innbyggðan lækni sem fæddist með þér. Lækni, sem getur læknað bæði líkamleg og andleg mein á einfaldan og fljótlegan hátt. Sem betur fer er þetta ekki ímyndun heldur staðreynd!\nÍtarlegri kynning á fyrirlestrum og fyrirlesurum er á www.u3a.is ( http://www.u3a.is ) undir viðburðir.\nEftir hvítasunnu hvílum við fræðslufyrirlestrana fram á haust en erum samt ekki alveg hætt þar sem við áætlum að efna til ferða og heimsókna á laugardögum í júní og áætlum líka að endurvekja kaffihittingana. Nánar um þetta síðar.\nKveðja frá stjórn U3A Reykjavík\n \n \n \n \n \n
URL:https://u3a.is/vidburdir/vidburdir-i-mai/
CATEGORIES:Erindi
LOCATION:Vefstreymi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2021/03/Jón-Bjornsson-og-Babelsturninn-1012x629-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
