BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.33.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20260625T220535
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-b01f659554805dc3b0dd01f757d440f9@u3a.is
DTSTART;TZID=UTC:20260127T170000
DTEND;TZID=UTC:20260127T180000
DTSTAMP:20251218T094127Z
CREATED:20251218
LAST-MODIFIED:20260124
PRIORITY:5
SEQUENCE:1
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Fornleifauppgröftur á Stöð í Stöðvarfirði
DESCRIPTION: \nÞriðjudaginn 27. janúar kl. 17:00 kemur til okkar í Hæðargarðinn Bjarni F. Einarsson, fornleifafræðingur og segir frá fornleifauppgreftri á Stöð í Stöðvarfirði. Þar hafa fundist skálar sem samkvæmt vísbendingum eru frá því fyrir 871.\nBjarni hélt til Svíþjóðar skömmu eftir stúdentspróf frá MR og hóf nám í fornleifafræði við Háskólann í Gautaborg vorið 1978. Fil kand námi var lokið 1882 og í beinu framhaldi af því hóf hann doktorsnámið. Doktorsvörnin fór fram 1994.\nSumarið 1978 fékk Bjarni ráðningu við fornleifarannsókn í Noregi og hefur stundað þær æ síðan með öðrum verkefnum. Frá 1979 til 1992 var hann verkefnaráðinn hjá Þjóðminjastofnun Svíþjóðar við fornleifaskráningar og fornleifarannsóknir þar til hann flutti heim sumarið 1992. Árin 1985-1987 var Bjarni safnstjóri Minjasafnins á Akureyri og eftir heimkomu starfaði hann í tvö ár á Árbæjarsafni, þá tvö ár á Þjóðminjasafni þar til hann hóf eigin rekstur 1997.\nHelstu rannsóknarverkefnin sem er lokið hafa verið Granastaðir í Eyjafjarðardal (dr. ritgerð), Hólmur í Nesjum (bókin Landnám og landnámsfólk) og Bær í Öræfum (bókin Bærinn sem hvarf). Nýlokið og yfirstandandi rannsóknarverkefni eru Vogur í Höfnum, Stöð á Stöðvarfirði og Arfabót á Mýrdalssandi. Bókin Víkingar á vesturleið er væntanleg á næsta ári, en þar verður m.a. fjallað um Vog og Stöð.\nFrá árinu 2000 með hléum hefur hann verið að leita að flökum baskaskipanna þriggja sem sukku í Reykjafirði á Ströndum og baskavígin spunnust út af.\nFrá árinu 2006 hefur Bjarni rannsakað eyðilýli á Síðheiðum með tilliti til hins mikla goss í Eldgjá 934 og áhrif þess á mannlíf og byggð á svæðinu, bæði á láglendi og upp til heiða. Eftir nokkurra ára hlé vegna andstöðu Minjastofnunar Íslands mun verkefninu vonandi ljúka á næsta ári. Verkið er unnið í samstarfi við próf. Þorvald Þórðarsson í HÍ.\n
URL:https://u3a.is/vidburdir/fornleifauppgroftur-a-stod-i-stodvarfirdi/
CATEGORIES:Erindi
LOCATION:Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2025/12/Screenshot-2025-12-17-at-21.27.21.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
