BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.33.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20260625T233949
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-00b4cca849ad2b96d2b193f453785a13@u3a.is
DTSTART;TZID=UTC:20250916T163000
DTEND;TZID=UTC:20250916T180000
DTSTAMP:20250820T153143Z
CREATED:20250820
LAST-MODIFIED:20250820
PRIORITY:5
SEQUENCE:1
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Yngst en samt fornlegust: Um Trektarbók Snorra-Eddu
DESCRIPTION:Þriðjudaginn 16. september kl. 16:30 fjallar Haukur Þorgeirsson rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun um Trektarbók Snorra-Eddu sem geymd er alla jafna í Utrecht í Hollandi en er nú til sýnis í Eddu.\nEdda Snorra Sturlusonar var vinsæl bók á miðöldum á Íslandi. Oft vísa skáldin til hennar og af henni eru varðveitt sjö skinnhandrit frá fjórtándu og fimmtándu öld. Engin tvö þessara handrita innihalda nákvæmlega sama efnið því að verkið var í stöðugri þróun og endursköpun eins og algengt er um kennslubækur.\nTalið er að Snorri Sturluson (d. 1241) hafi samið Eddu sem kennslubók í skáldskaparfræðum. Hún er í samtalsformi og fjallar um norræna goðafræði, skáldamál og bragarhætti. Handritið, sem er til sýnis, skrifaði Páll Jónsson í Þernuvík við Ísafjarðardjúp í lok 16. aldar eftir skinnbók frá 13. öld sem nú er glötuð. Á 17. öld barst handritið til Kaupmannahafnar og var um hríð í eigu Ole Worms prófessors. Síðan komst bókin í hendur þýska fræðimannsins Christians Rave sem gaf hana Háskólabókasafninu í Utrecht árið 1643. Þar hefur handritið verið varðveitt alla tíð síðan.\nTrektarbók Snorra-Eddu er hins vegar ekki skinnbók heldur pappírshandrit, rituð um 1600. Af meginhandritum Eddu er Trektarbók yngst en samt er hún eina handritið sem geymir verkið í því formi sem talið er upphaflegast, án þess að nokkru hafi verið sleppt eða bætt við. Jafnframt varðveitir hún oft fornlegri rithætti en önnur handrit og er mjög dýrmæt heimild til að hjálpa okkur að skyggnast inn í skrifstofur 13. aldar þar sem Edda varð til.\nTrektarbók er nú á Íslandi í fyrsta skipti í 400 ár. Haukur fjallar um sögu handritsins og gildi þess.\nHaukur Þorgeirsson er rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hann lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands 2013 og hefur unnið hjá Árnastofnun síðan 2014.\n\n\n
URL:https://u3a.is/vidburdir/yngst-en-sant-fornlegust-um-trektarbok-snorra-eddu/
CATEGORIES:Erindi
LOCATION:Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2025/08/Screenshot-2025-08-19-at-12.27.18.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
