BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.33.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20260626T005506
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-09094f96926cff36073b2fec98e21fb7@u3a.is
DTSTART;TZID=UTC:20250311T163000
DTEND;TZID=UTC:20250311T180000
DTSTAMP:20250223T195133Z
CREATED:20250223
LAST-MODIFIED:20250223
PRIORITY:5
SEQUENCE:4
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Heilun heilans:  er lykill falinn í hvíta efninu?
DESCRIPTION:Þriðjudaginn 11. mars kl. 16:30 kemur Ragnhildur Þóra Káradótttir, prófessor í taugalífeðlisfræði til okkar í Hæðargarð 31 og fjallar um heilun heilans.\n\n\nHelmingur heilsans er svokallað hvíta efni, sem hefur hingað til verið lítt rannsakað en gæti geymt lykilinn að lausn á heila- og taugahrörnunarsjúkdómum.\nÍ þessum fyrirlestri verður fjallað um hvað hvíta efni heilans er og rýnt í sögulegt samhengi til að skýra hvers vegna áhrif skemmda í því hafa lítið verið rannsökuð.\nFyrirlesturinn mun kynna hvernig skemmdir í hvíta efninu eiga sér stað í mænusiggi (MS) og taugahrörnunarsjúkdómum, svo sem Alzheimer. En enn eru engar fullnægjandi læknismeðferðir til við þessum sjúkdómum, sem einnig valda verulegum kostnaði fyrir samfélagið. Nú er ljóst að skemmdir á hvíta efninu koma fram áður en klínísk einkenni og taugahrörnun verða sýnileg, sem bendir til þess að þær hafi orsakasamband við taugahrörnun.\nÍ fyrirlestrinum verður fjallað um orsakasamband skemmda í hvíta efninu og taugasjúkdóma almennt, auk grunnrannsókna okkar sem lúta að stofnfrumum sem laga hvíta efni heilans. Við leggjum fram þá tilgátu að skemmdir í hvíta efninu valdi breytingum í heilavirkni sem stjórna þessu endurnýjunarferli mýelíns og með að nýta endurnýjunarferli mýelíns gæti verið hægt að koma í veg fyrir heilabilun.\nLyf sem örva mýelínmyndun gætu gjörbylt þeim læknismeðferðum sem notaðar eru til að bæta taugastarfsemi hjá einstaklingum með fjölmarga taugasjúkdóma.\nRagnhildur Þóra Káradóttir lauk grunnnámi í lífefnafræði við Háskóla Íslands. Hún hóf framhaldsnám í taugavísindum á styrk frá Wellcome Trust and Chevening við University College London (UCL) og lauk þar doktorsnámi undir handleiðslu prófessors David Attwell. Eftir útskrift hlaut hún Dorothy Hodgkin styrk frá Royal Society UK og Wellcome Trust Career Development rannsóknarstyrk til að stofna eigin rannsóknarhóp við Háskólann í Cambridge.\nSíðan hún stofnaði rannsóknarstofu sína hefur hún hlotið fjölda viðurkenninga. Meðal verðlauna hennar eru Lister Institute Research Prize (einn af fimm í Bretlandi), Allen Distinguished Investigator Award (einn af fimm á heimsvísu og í fyrsta sinn veitt utan Bandaríkjanna) og ERC Consolidator Award. Hún var valin í FENS-Kavli Network of Excellence (einn af 20 í Evrópu) og árið 2020 var hún skipuð forstöðumaður Cambridge Centre for Myelin Repair, sem er styrkt af MS-félagi Bretlands við Háskólann í Cambridge.\n\n
URL:https://u3a.is/vidburdir/heilun-heilans-er-lykill-falinn-i-hvita-efninu/
CATEGORIES:Erindi
LOCATION:Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2025/02/Screenshot-2025-02-23-at-19.48.05.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
