BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv6.11.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-e464656edca5e58850f8cec98cbb979b@u3a.is
DTSTART:20240227T163000Z
DTEND:20240227T180000Z
DTSTAMP:20240214T110300Z
CREATED:20240214
LAST-MODIFIED:20240223
PRIORITY:5
SEQUENCE:7
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Harðstjórn verðleikanna.
DESCRIPTION:Þriðjudaginn 27. febrúar 2024 kl. 16:30 flytur Vilhjálmur Árnason fyrirlestur í Hæðargarði 31 sem hann nefnir: Harðstjórn verðleikanna.\nReifaðar eru hugmyndir heimspekingsins Michaels Sandel í bókinni The Tyranny of Merit (2021) og þær settar í samhengi við réttlætishugmyndir almennt og íslenskt samfélag.\nHugmyndin um að hver og einn eigi að njóta verðleika sinna er almennt viðtekin sem gagnlegt leiðarljós í réttlætisbaráttu og hefur verið lykilstef í pólitískri orðræðu undanfarinna áratuga. Sandel og fleiri heimspekingar hafa þó gagnrýnt verðleikahugmyndina, því þótt hún hafi gegnt mikilvægu sögulegu hlutverki þá sé hún nú á dögum notuð til að draga fjöður yfir ójöfnuð og ranglæti. Raunar eru færð rök fyrir því að verðleikahugmyndin sé skaðleg í margvíslegu samhengi og eigi þátt í þeirri kulnun sem fylgir fullkomnunaráráttu og frammistöðukröfum samtímans.\nVilhjálmur Árnason lét nýlega af störfum sem prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Meðal ritverka hans er bókin Farsælt líf, réttlátt samfélag (Heimskringla 2008). Nýjasta bók Vilhjálms er 3. útgáfa Siðfræði lífs og dauða (2023).\n
URL:https://u3a.is/vidburdir/hardstjorn-verdleikanna/
CATEGORIES:300 Félagsvísindi
LOCATION:Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2024/02/Screenshot-2024-02-14-at-10.59.26.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
