BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv6.11.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://u3a.is/
X-WR-CALNAME:U3A Reykjavík
X-WR-CALDESC:Lærðu á meðan þú lifir.
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-f9d8bf6b7414e900118caa579ea1b7be@u3a.is
DTSTART:20231022T130000Z
DTEND:20231022T160000Z
DTSTAMP:20231006T124500Z
CREATED:20231006
LAST-MODIFIED:20231006
PRIORITY:5
SEQUENCE:2
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Andlegt líf eldri borgara – tveggja daga námskeið
DESCRIPTION:U3A Reykjavík býður upp á námskeið um andlegt líf eldri borgara dagana 22. og 23. október. Námskeiðið er haldið í Hæðargarði 31 sunnudaginn 22. október kl. 13-16 og mánudaginn 23. október kl. 16-19. Kaffi í hléi. Umsjónarmaður er Stefán Jökulsson.\nKjör og framfærslumál geta vissulega haft áhrif á andlegt líf okkar eldri borgara en á þessu námskeiði leitum við svara við spurningum sem snerta líf okkar og tilveru í víðara samhengi.\nStefán Jökulsson umsjónarmaður námskeiðsins, er 73 ára gamall eftirlaunamaður, fyrrverandi lektor við Háskóla Íslands og útvarpsmaður á sínum tíma. Hann lauk nýlega rannsóknartengdu MA námi við Háskólann á Akureyri um andlegt líf (spirituality) og snerti rannsókn hans meðal annars andlegt líf eldri borgara.\n Þátttakendur hittast tvo daga í röð, í um þrjár klukkustundir í hvort sinn. Hvorn dag kynnir Stefán tvö umræðuefni og svo ræða þátttakendur möguleg svör við spurningum sem tengjast þeim. Þátttakendur á námskeiðinu geta einnig haft áhrif á það efni sem um er rætt.\n Dæmi um spurningar:\n\nErum við sátt við andlegt líf okkar og líðan á þessu aldursskeiði? Hvað gæti orðið til þess að okkur liði betur.\nEr hugsanlegt að hugmyndir (fordómar?), okkar sjálfra eða yngri kynslóða, þyngi róðurinn hjá okkur á síðasta æviskeiðinu?\nHvernig sinnum við eldri borgarar tilfinningalífi okkar? Er eitthvað sem reynist okkur sérlega erfitt hvað það varðar?\nEr hugsanlegt að umhyggja gagnvart okkur eldri borgurum dragi stundum úr hugrekki okkar og virkni?\n\n\nÍ upphafi námskeiðsins ræðum við um tilhögun umræðunnar og hvernig við höldum innihaldi hennar til haga. En við getum endurskoðað fyrirkomulagið í lok fyrri dagsins ef við teljum það nauðsynlegt.\n
URL:https://u3a.is/vidburdir/andlegt-lif-eldri-borgara-tveggja-daga-namskeid/
CATEGORIES:000 Almennt efni
LOCATION:Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://u3a.is/wp-content/uploads/2023/10/Screenshot-2023-10-06-at-12.32.59.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
