Námskeið til undirbúnings haustferð til Tyrklands

Ferðahópur U3A Reykjavík og Söguferða

Námskeið til undirbúnings Tyrklandsferð á vegum U3A og Söguferða haustið 2024 verður  haldið í Hæðargarði 31 kl. 16:30 dagana: 22., 27. og 29. ágúst og kl. 18:15 þ. 3. september. Fyrirlesari er Jón Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur. 

Í fyrsta hlutanum 22. ágúst verður fjallað um Tyrkland almennt, borgina Istanbúl, merkisstaði í nágrenni hennar og elstu sögu Anatólíu/Litlu Asíu.

Í öðrum hluta 27. ágúst verður fjallað um býsanska tímbilið 330 – 1453 þegar Konstantínópel var höfuðborg aust-rómverska ríkisins.

Þriðji hlutinn 29. ágúst hefst á því er Tyrkir/Osmanar hertóku Konstantínópel gerðu hana að höfuðborg Ottomanaríkisins árið 1453, og rekur síðan söguna Tyrklands til nútímans.

Í fjórða hlutanum 3. sept. verður sagt frá nokkrum helstu sögustöðum og mannvirkjum sem skoðuð verða; svo sem Top Kapi, Hagia Sophia, Grand Bazar, Kappadókia o.fl.

Námskeiðin eru haldin að Hæðargarði 31 kl 16.30 til 17.45 af Jóni Björnssyni.  Athugið breyttan tíma síðasta námskeiðsdaginn 3. september kl. 18:15-19:30

Námskeiðin er haldin fyrst og fremst fyrir þá sem ætla í væntanlega haustferð U3A til Tyrklands, en annars opin öllum sem áhuga hafa.

með kveðju frá ferðanefnd

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9

Dagur

22.08.2024
Expired!

The event is finished.

Fyrirlesari

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content