Við vekjum athygli á að októberfréttabréf U3A Reykjavík er nú komið út og hefur verið sent félögum. Í þessu fréttabréfi, sem kemur út á Alþjóðadegi aldraðra, er sem fyrr að finna áhugaverðar og skemmtilegar greinar um málefni eldra fólks.
Efni októberbréfsins er:
Öðruvísi morgungrautur frá Bláa Svæðinu Loma Linda
Viðburðir U3A Reykjavík í október 2024Fréttabréfið má lesa hér:
Fréttabréf U3A Reykjavík í september 2024
Njótið!Næsta fréttabréf kemur út þriðjudaginn 1. október. Félagsmenn U3A munu fá fréttabréfin sent til sín í tölvupósti og hægt er að skoða fyrri fréttabréf hér.
Þau sem vilja gerast félagar og fá aðgang fréttabréfunum og öllum viðburðum U3A geta skráð sig á https://u3a.is/felagaskra/.
Í tilraunaskyni er nú hægt að skoða fréttabréfið sjálfvirkt vélþýtt á ensku, pólsku, litháísku, spænsku og úkraínsku. Fyrirvari er gerður á hugsanlegri brenglun texta í vélþýðingunni.
Sérstakur ritstjórnarhópur U3A félaga sér um útgáfu Fréttabréfsins. Því er ætlað að vera vettvangur fræðslu og upplýsinga um málefni fólks á þriðja æviskeiðinu með virkni í fókus. Þar verða birtir fjölbreyttir pistlar og greinar um mál sem varða eldra fólk og tækifæri sem standa þeim til boða, jafnt fyrir sem eftir að hefðbundnu starfi lýkur. Þá mun Fréttabréfið birta pistla um þróun mála eldri borgara innanlands sem erlendis. Félagar U3A Reykjavík eru hvattir til að koma með tillögur um umfjöllunarefni. Ritstjóri Fréttabréfsins er Hjördís Hendriksdóttir, hjordis.hendriks@outlook.com og aðrir í ritstjórn eru þau Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir, Hans Kristján Guðmundsson, Jón Ragnar Höskuldsson og Viðar Eggertsson.
Með kveðjum frá ritstjórn